|
 |
Velkomin á heimasíð Guðnýar Magnúsdóttur leirlistamanns í Stúdíó Úmbru.
“Verk mín hafa að stærstum hluta fjallað um umbreytingu og hringrás lífsins, frá jörðu til jarðar, þess efnis sem ég nota í verkum mínum. Hin tvíþætta hugsun um leirinn sem efni í nytjahluti og hins vegar efnivið hreinnar myndlistar er mér sérstaklega hugleikinn”.
“Í verkum mínum leitast ég við að brúa bil skálar og skúlptúrs eða skúlptúrs og vasa”.
“Spurningin um það hversu sterk bönd handverkshefðarinnar eru í frjálsri hugsun myndlistarinnar eru mér áleitin. Rætur verka minna standa í hefð leirkerasmiðsins, en það freistar mín að reyna á þanþol hefðarinnar og leita spennunnar sem verður þegar mörkin óskýrast, að gera skál að skúlptúr” .
“Mikilvægi hugsunarinnar um hlutverk formsins, um innra og ytra rými þess, þess að nota og njóta, það er fyrir mér rauði þráðurinn í upplifuninni á góðri keramik. Þess leita ég í mínum verkum”. |